Húsin hans Hreins

Hafnarborg í Hafnarfirði opnaði í gær nýja sýningu í Sverrissal á ljósmyndaverkunum House Project, Annað hús og Þriðja hús eftir Hrein Friðfinnsson.

Verkið House Project er frá árinu 1974 og er með þekktari verkum Hreins, annað hús er verk sem hann vann fyrir skúlptúrgarð í Frakklandi árið 2008 og svo er Þriðja hús nýjasta verkið, unnið 2011 og hefur ekki verið sýnt áður.

Samhliða sýningunni kom út gullfalleg bók á vegum bókaútgáfunnar Crymogea þar sem fjallað er ítarlega um verkin þrjú í máli og myndum. Við mælum með því að þið náið ykkur í eintak ásamt því að sjálf sögðu að sjá sýninguna.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Posted in List, myndlist, opnun, Pistlar, umfjöllun | Skrá ummæli

Beint í augað, beint í mark

ef þú ert hittinn það er.

Í sýningarrýminu Öruggt rými (Freyjugöturóló) má meðal annars munda túttubyssur í þeim tilgangi að hitta á gagnvirkann skúlptúr, að verðlaunum uppskerðu út úr honum hljóð.

Á sýningunni má einnig sjá málverk og vídeóverk eftir listamennina Elínu Önnu Þórisdóttur og Pál Ívan frá Eiðum sem tromma upp með þessa skemmtilegu sýningu sem fær einungis að standa í 3 tíma.

Þegar að þetta er skrifað er klukkutími eftir af sýningunni svo um er að gera að drífa sig út í fjörið.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Posted in Hin líðandi stund, List, myndlist, opnun, umfjöllun | Skrá ummæli

Forsíða Endemi gerð opinber:

Photobucket

Forsíðu 3.tbl Endemi prýðir verk myndlistarmannsins Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur.

Posted in List, Magazine, myndlist | Skrá ummæli

Hreinn Friðfinnsson í Hafnarborg.

Hús, sýning á nýjum og eldri verkum eftir Hrein Friðfinnsson, verður opnuð í Sverrissal Hafnarborgar laugardaginn 12. maí kl. 15. Sýnd verða ljósmyndaverkin House ProjectAnnað hús og Þriðja hús. Elsta verkið, House Project, er frá 1974 og er á meðal þekktari verka Hreins en Þriðja hús er nýtt verk sem nú er sýnt í fyrsta skipti. Verkin tengjast öll hvert öðru en hafa ekki fyrr verið sýnd saman.

Hreinn vann House Project árið 1974 en þá byggði hann hús í hrauninu sunnan Hafnarfjarðar, innblásið af frásögn Þórbergs Þórðarsonar af Sólon Guðmundssyni á Ísafirði. Húsið var byggt á röngunni og innihélt þannig allan heiminn utan sjálft sig. Hreinn vann síðan aðra útgáfu af húsinu og var hún reist í skúlptúrgarði í Frakklandi árið 2008. Það hús er speglun fyrsta hússins þannig að hið ytra sneri að veröldinni en inni var veröldin sjálf. Inni í húsinu svífur loftsteinn sem nokkurskonar fulltrúi alheimsins og á honum er líkan af fyrsta húsinu byggt úr mjóum vír.  Síðsumars árið 2011 mátti síðan greina útlínur húss á ferðalagi um hraunið sunnan Hafnarfjarðar. Áfangastaðurinn var hóllinn þar sem fyrsta húsið stóð árið 1974. Þarna var komin enn ein útgáfa hússins, stækkuð endurgerð vírmódelsins innan úr húsinu í Frakklandi. Áfangastaður hússins sem var borið í gegnum hraunið árið 2011 var þannig jafnframt uppruni þess. Húsin eru spegilmyndir hvers annar, fela í sér alla veröldina um leið og þau loka hana úti. Texta og ljósmyndaverkin á sýningunni í Hafnarborg eru byggð á þessum húsum en húsin sjálf eru ýmist sýnileg sem skúlptúr í Frakklandi eða orðin að leyndarmáli eða goðsögn í hrauninu sunnan Hafnarfjarðar.

Hreinn Friðfinnsson er á meðal þeirra íslensku listamanna sem öðlast hafa mesta viðurkenningu alþjóðlega. Hann hefur sýnt á einkasýningum og samsýningum um allan heim. Yfirlitssýning á verkum hans var í Serpentine Gallery í London og Listasafni Reykjavíkur 2007 – 2008. Verk eftir Hrein eru í eigu fjölda opinberra safna og einkasafna, þar á meðal er verkið House Project sem er í eigu Moderna Museet í Stokkhólmi. Hreinn tók þátt í stofnun SÚM hópsins á 7. áratugnum og er einn af leiðandi listamönnum íslenskrar konseptlistar. Hreinn fæddist í Dölunum árið 1943 og stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands á árunum 1958-60. Hreinn hefur frá 1971 búið og starfað í Amsterdam, en þrátt fyrir það má hvarvetna greina áhrif hans og mikilvægi fyrir íslenska myndlist.

Í tilefni sýningarinnar gefur Hafnarborg í samstarfi við bókaútgáfuna Crymogeu út bók þar sem finna má myndir af verkunum og af gerð þeirra auk texta eftir franska listfræðinginn Frédéric Paul og Ólöfu K. Sigurðardóttur, sýningarstjóra sýningarinnar og forstöðumann Hafnarborgar. Hönnuður bókarinnar er Ármann Agnarsson.

Photobucket

Posted in Hin líðandi stund, List, myndlist, opnun | Skrá ummæli

Kanadískir listamenn í Útúrdúr

Laugardaginn næst komandi opna tveir kanadískir listamenn sýningu á bókverkum í bókabúðinni Útúrdúr á hverfisgötu 42

Það eru þau Michael Brown og Silvia Matas

Bókverkið In every direction eftir Silviu Matas samanstendur af myndum og texta án frásagnar. In every direction er 45 blaðsíðna bókverk gefið út í 100 eintökum

Michael Brown gefur út bókverkið  Winterhouses sem er 60 síðna bókverk , sem samanstendur af teikningum, tungumáli, bleki málverki og myndium.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Efstu tvær myndir eftir Silviu Matas.

Neðri tvær myndir eftir Michael Brown.

Posted in Hin líðandi stund, List, myndlist, opnun, Pistlar | Skrá ummæli

Beint í augað í Öruggu rými

Laugardaginn 12. Maí sýna listamennirnir Elín Anna Þórisdóttir og Páll Ivan frá Eiðum í Öruggu Rými (Freyjugöturólóinn) og er eingöngu opið milli kl 17 og 20 þann dag. Þrír tímar, einn séns.

“Við fórum í Síldarvinnsluna til að fá gúmmíhanska. Ef við nenntum því ekki þá …var stolið frá mömmu. Mér þótti einangrunarrörin best, og stundum notuðum við “hosaklemmu” til að festa túttuna á rörið. Annars var notast við teip. Stundum var búið til mið úr öðru röri og límt ofan á skothlaupið.
Mér fannst best að nota rifsber, óþroskuð. Helst úr runnunum hjá Ingu BOggu á Tindum. Fyllti munninn af þeim og spýtti ofaní byssuna. Svo þegar bardaginn var yfirstaðinn þá var hægt að tyggja restina af skotfærunum.
Það var ekki túttuvænt að nota grjót í byssuna.
Í Neskaupstað var oft túttubyssustríð á milli innbæjar og útbæjar.
‘EG hætti að taka þátt í vþí þegar J’ohann fékk skot í augað og þurfti að flytja hann með sjúkraflugi til Reykjavíkur.”
- Stefán Arason

Posted in myndlist, opnun | Skrá ummæli

Æringur á Rifi 2012

Æringur mun þetta árið koma sér fyrir á norðanverðu Snæfellssnesi í litla sjávarþorpinu Rifi.

Hátíðin hefur í ár aðsetur í Frystiklefanum, gömlu fiskvinnsluhúsi sem í dag hýsir ýmsa menningarviðburði.

Æringur mun leiða saman 15 manns úr hópi sviðslistamanna og myndlista…rmanna. Bakgrunnur þeirra liggur í leikhúsi, gjörningum og tónlist en þau hafa það sameiginlegt að vinna einnig með umhverfið og samfélagið á einhvern hátt í verkum sínum.

Þau munu dvelja á Rifi í 10 daga fyrir opnun hátíðarinnar og vinna að verkum sínum.

Listamennirnir eru:

∆…Ragnheiður Harpa Leifsdóttir
∆…Leifur Þór Þorvaldsson
∆…Alexander Roberts
∆…Kellokumpu & Roumagnac
∆…Örn Alexander Ámundason
∆…Sigurður Atli Sigurðsson
∆…Björk Viggósdóttir
∆…Lisa Gideonsson
∆…Gustaf Londré
∆…Steinunn Harðardóttir
∆…Klængur Gunnarsson
∆…Gísli Pálsson
∆…Per Kristian Nygård
∆…Axel Diego

Opnunin verður laugardaginn 7. Júlí og vonumst við til að sjá sem flesta heimamenn sem og ferðamenn. Facebook viðburður hátíðarinnar má finna hér: Æringur.

Posted in Hin líðandi stund, List, myndlist, opnun | Skrá ummæli

Dark Lucidity opnaði í Reykjavík Art Gallery

Um helgina opnaði Kristinn Már Pálmason sýninguna Dark Lucidity í Reykjavík Art Gallery á skúlagötu 30.

Sýningin stendur til 26. maí.

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Photobucket

Posted in Hin líðandi stund, List, myndlist, opnun, Pistlar, umfjöllun | Skrá ummæli