Um Endemi

Endemi er nýtt tímarit um íslenska samtímamyndlist. Markmið tímaritsins eru að skapa tvívíðan vettvang fyrir samtímalist, brúa bilið milli almennings og myndlistar, og rýna í kynjaójafnvægi í lista- og menningarumfjöllun á Íslandi í dag. Endemi er enn fremur gallerí eða sýningarrými því hverju tölublaði er sýningarstýrt líkt og þrívíðu galleríi nema hér er um að ræða tvívítt rými.

Að tímaritinu standa ungar konur með ólíkan bakgrunn. Í hópnum eru myndlistarmenn, mannfræðingar, listfræðingur, framleiðandi, ljóðskáld, myndskreytir og mæður svo fáein hlutverk séu nefnd. Þetta er fyrsta útgáfan sem við stöndum sjálfar fyrir en flestar höfum við komið að einhverskonar útgáfu áður.

Endemi er ekki aðeins spennandi vettvangur fyrir myndlsitarmenn að koma verkum sínum á framfæri heldur verður það einnig heimild um íslenska listasenu. Við vonum að ykkur muni finnast þetta jafn skemmtilegt og okkur svo endilega látið skoðanir ykkar skína hér á síðunni okkar eða sendið okkur ábendingar í tölvupósti á endemitimarit@gmail.com.

Við erum :

Ásta Briemwww.astabriem.com

Ásta lauk námi í kvikmyndagerð frá London Film School árið 2000 og hefur unnið við fagið síðan. Hún hefur komið að gerð fjölmargra kvikmynda og þátta og unnið jafnt við klippingar og framleiðslu hér heima og erlendis. Hún er sjálfstætt starfandi.

Elísabet Brynhildardóttir - www.elisabetb.com

Elísabet útskrifaðist frá University College for the Creative Arts í Bretlandi árið 2007 með B.A.- gráðu í illustration. Hún hefur síðar unnið að margvíslegum verkefnum bæði í myndlist og hönnun. Elísabet býr og starfar í Reykjavík


Lilja Birgisdóttir

Lilja lauk B.A.- námi frá myndlistardeild Listajáskóla Íslands árið 2010. Hún hafði áður numið ljósmyndun við Konunglega listaháskólann í Haag í Hollandi. Lilja hefur verið meðlimur í Kling og Bang gallerí frá 2010. Hún býr og starfar í Reykjavík.

Ragnhildur Jóhannsdóttir -  www.ragnhildurjohanns.wordpress.com

Ragnhildur útskrifaðist með B.A- próf frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2010 og hefur unnið að myndlist og ritlist síðan. Hún hefur sýnt bæði hérlendis og erlendis. Hún er m.a. í Nýlókórnum hinum                               íslenska hljóðljóðakór og fjöllistahópnum The Weird Girls.

Selma Hreggviðsdóttir - www.selmahregg.is

Selma útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2010 með B.A.-próf í myndlist. Hún hefur unnið að margvíslegum myndlistarverkum og sýningum frá útskrift sinni og verið meðlimur í Kling og Bang gallerí síðan þá. Selma býr og starfar í Reykjavík.


Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s