Teikn í Nýló

TEIKN 29.01-11.03.2012 Laugardaginn 28. janúar kl. 17:00 verður opnuð í Nýlistasafninu sýningin Teikn, með verkum þeirra Myriam Bat-Yosef og Jóhönnu Kristbjargar Sigurðardóttur.

Myriam eða María Jósepsdóttir, er fædd í Berlín árið 1931, en hefur verið búsett í París um árabil. Myriam nam í París og á langan og fjölbreyttan feril að baki víða um heim. Hún er íslenskum listunnendum að góðu kunn og sýndi töluvert hér á landi á seinni hluta síðustu aldar. Hún sýnir í Nýlistasafninu ný verk, teikningar og veggmálverk, í bland við eldri verk frá ýmsum tímum úr einka- og opinberri eigu hérlendis. Í verkum sínum tekst Myriam á við eðli og einkenni kynjanna, frjóvgunar, fæðingar og lífs, hrörnunar og dauða.

Jóhanna Kristbjörg er fædd árið 1982 í Reykjavík. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2008 og hefur nýlega hlotið styrk úr Listasjóði Dungal sem árlega veitir efnilegum myndlistarmönnum viðurkenningu. Jóhanna sýnir í Nýlistasafninu málverkainnsetningu, gjörning og tvö myndbandsverk sem saman mynda þríleik. Jóhanna túlkar í verkum sínum áhrif sem koma úr ólíkum áttum bæði frá samfélaginu og hennar nánasta umhverfi. Hún setur sig oft í ákveðið hlutverk og beitir tilfinningalegri nálgun á viðfangsefni sín sem hún þróar með rannsóknum, í leit að að táknrænu samhengi og dýpri merkingu verka sinna.

Myriam og Jóhanna eru valdar saman á sýninguna vegna þess hve svipaðan streng er að finna í listsköpun þeirra þrátt fyrir hið breiða aldursbil sem á milli þeirra er. Báðar hafa þær notað málverk, myndbönd og gjörninga til að miðla tengslum þess sem unnt er að skynja en erfitt getur reynst að tjá með orðum. Þær hafa þróað myndmál sem í formum og litum mynda sterka táknrænu og fær á sig trúarlegt, jafnvel yfirskilvitlegt yfirbragð. Ríkjandi í verkum þeirra beggja er áhersla á frjálst flæði hugmynda sem rekja mætti til symbólisma og súrrelisma. Sýningin er styrkt af Hlaðvarpanum og Reykjavíkurborg. Auk þess leggur Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sýningunni lið.

Dagskrá í tengslum við sýninguna Teikn: 23. janúar kl. 12.30: Fyrirlestur með Myriam Bat-Yosef í Listaháskóla Íslands. 28. janúar kl. 17.00: Opnun sýningarinnar Teikn í Nýlistasafninu 28. janúar kl. 17.30: Gjörningur Jóhönnu Kristbjargar í Nýlistasafninu 29. janúar kl. 15.00: Listamannaspjall með Myriam Bat-Yosef í Nýlistasafninu 12. febrúar kl. 15.00: Listamannaspjall í Nýlistasafninu með Jóhönnu Kristbjörgu og Markúsi Þór Andréssyni, sem ritar texta í sýningarskrá. 10. febrúar kl. 12.00-24.00: Safnanótt. Nýlistasafnið verður opið til miðnættis.

 

Nánar á www.nylo.is

About ragnhildurjohanns

Visual artist and a poet currently based in Reykjavík, Iceland.
This entry was posted in Pistlar. Bookmark the permalink.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s