Listbókamarkaður í Crymogea.

Í fyrsta sinn á Íslandi – markaður sem eingöngu er helgaður myndlistarbókum !!!

Á Listabókahelgi Crymogeu má nálgast mikið úrval íslenskra myndlistarbóka og bókverka á einum stað. Sjálfstætt starfandi listamenn og fræðimenn, auk fjölmargra forlaga og safna hafa dregið up…p bækur af lagerum sínum sínum sem sumar hverjar hafa ekki verið á markaði í áraraðir. Einnig má finna ýmsar gersemar sem eru aðeins til í örfáum eintökum.

Grípið þetta einstaka tækifæri til að gera góð kaup. Týndar perlur eftir marga fremstu listamenn þjóðarinnar.

Kristján Guðmundsson, Birgir Snæbjörn Birgisson, Rúrí, Helga Þórarinsdóttir, Birgir Andrésson, Harpa Björnsdóttir, Ragnhildur Jóhanns, Daði Guðbjörnsson, Helgi Þorgils, Kees Visser, Harpa Árnadóttir, Hlynur Hallsson, Eggert Pétursson, Georg Guðni, Katrín Elvarsdóttir, Magnús Pálsson og fleiri.

Opið er frá klukkan 9.00-18.00 föstudag og 11.00 til 16.00 laugardag og sunnudag.

Myndlistarmennirnir Katrín I Jónsdóttir Hjördísardóttir og Ragnhildur Jóhanns halda gjörninga til heiðurs bókverkinu, laugardaginn 4. febrúar og sunnudaginn 5. febrúar klukkan 14.00.

Aðeins þessa einu helgi!
Crymogea er á Barónsstíg 27, rétt fyrir ofan Laugaveginn.

 

Posted in Pistlar | Skrá ummæli

Terpentína kemur út

 

Prentmyndasögubókverkið TERPENTÍNA verður kynnt til Sögunnar í hinni frábæru bókabúð Útúrdúr á Hverfisgötu 42. Terpentínan er tæplega 30 blaðsíðna hlunkur, handprentaður í 50 tölusettum eintökum og er afrakstur námskeiðs á prentverkstæði Listaháskóla Íslands, sem fram fó…r dagana 16. til 27. janúar sl. Meginstefið er frásögnin, með beinum eða óbeinum myndasöguhætti.

Umsjón var í höndum Jóhanns Ludwigs Torfasonar.

Höfundar eru:
Andreas Jari Juhani Toriseva
Guðrún Tara Sveinsdóttir
Ívar Glói Gunnarsson
Karl Torsten Stallborn
Myrra Leifsdóttir
Óskar Kristinn Vignisson
Sigrún Hlín Sigurðardóttir
Steingrímur Gauti Ingólfsson

Sérstakur gestur:
Eldur Lynx Carlsson Hagberg

Allir eru velkomnir á útgáfuna.

 

 

Posted in Pistlar | Skrá ummæli

Teikn í Nýló

TEIKN 29.01-11.03.2012 Laugardaginn 28. janúar kl. 17:00 verður opnuð í Nýlistasafninu sýningin Teikn, með verkum þeirra Myriam Bat-Yosef og Jóhönnu Kristbjargar Sigurðardóttur.

Myriam eða María Jósepsdóttir, er fædd í Berlín árið 1931, en hefur verið búsett í París um árabil. Myriam nam í París og á langan og fjölbreyttan feril að baki víða um heim. Hún er íslenskum listunnendum að góðu kunn og sýndi töluvert hér á landi á seinni hluta síðustu aldar. Hún sýnir í Nýlistasafninu ný verk, teikningar og veggmálverk, í bland við eldri verk frá ýmsum tímum úr einka- og opinberri eigu hérlendis. Í verkum sínum tekst Myriam á við eðli og einkenni kynjanna, frjóvgunar, fæðingar og lífs, hrörnunar og dauða.

Jóhanna Kristbjörg er fædd árið 1982 í Reykjavík. Hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2008 og hefur nýlega hlotið styrk úr Listasjóði Dungal sem árlega veitir efnilegum myndlistarmönnum viðurkenningu. Jóhanna sýnir í Nýlistasafninu málverkainnsetningu, gjörning og tvö myndbandsverk sem saman mynda þríleik. Jóhanna túlkar í verkum sínum áhrif sem koma úr ólíkum áttum bæði frá samfélaginu og hennar nánasta umhverfi. Hún setur sig oft í ákveðið hlutverk og beitir tilfinningalegri nálgun á viðfangsefni sín sem hún þróar með rannsóknum, í leit að að táknrænu samhengi og dýpri merkingu verka sinna.

Myriam og Jóhanna eru valdar saman á sýninguna vegna þess hve svipaðan streng er að finna í listsköpun þeirra þrátt fyrir hið breiða aldursbil sem á milli þeirra er. Báðar hafa þær notað málverk, myndbönd og gjörninga til að miðla tengslum þess sem unnt er að skynja en erfitt getur reynst að tjá með orðum. Þær hafa þróað myndmál sem í formum og litum mynda sterka táknrænu og fær á sig trúarlegt, jafnvel yfirskilvitlegt yfirbragð. Ríkjandi í verkum þeirra beggja er áhersla á frjálst flæði hugmynda sem rekja mætti til symbólisma og súrrelisma. Sýningin er styrkt af Hlaðvarpanum og Reykjavíkurborg. Auk þess leggur Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar sýningunni lið.

Dagskrá í tengslum við sýninguna Teikn: 23. janúar kl. 12.30: Fyrirlestur með Myriam Bat-Yosef í Listaháskóla Íslands. 28. janúar kl. 17.00: Opnun sýningarinnar Teikn í Nýlistasafninu 28. janúar kl. 17.30: Gjörningur Jóhönnu Kristbjargar í Nýlistasafninu 29. janúar kl. 15.00: Listamannaspjall með Myriam Bat-Yosef í Nýlistasafninu 12. febrúar kl. 15.00: Listamannaspjall í Nýlistasafninu með Jóhönnu Kristbjörgu og Markúsi Þór Andréssyni, sem ritar texta í sýningarskrá. 10. febrúar kl. 12.00-24.00: Safnanótt. Nýlistasafnið verður opið til miðnættis.

 

Nánar á www.nylo.is

Posted in Pistlar | Skrá ummæli

Ávarp Fríðu Bjarkar Ingvarsdóttur

Opnunarerindi sýningarinnar Ó-sýn
Gerðarsafni, 19. nóv. 2011. 
Fríða Björk Ingvarsdóttir.

Kæru Endemis-gestir;

Í tímamótabók sinni um myndlist, Ways of Seeing – eða Leiðir til að sjá – bendir einhver mesti hugsuður tuttugust aldar, John Berger, á þá staðreynd að sýn okkar á heiminn kemur á undan orðum okkar um heiminn. Barnið horfir og þekkir löngu áður en það getur talað.

Berger bendir ennfremur á hvernig sýn okkar kemur á undan orðum í öðrum skilningi. Þ.e.a.s. í þeim skilningi að það er sýnin sem leggur grunninn að stöðu okkar í heiminum sem umlykur okkur. Við útskýrum þann heim með orðum, en orðin geta samt aldrei vegið upp á móti þeirri staðreynd að heimurinn er allt um kring. Sambandið á milli þess sem við sjáum og þess hvað við vitum verður m.ö.o. aldrei útkljáð.

Continue reading

Posted in Endemis uppákomur, Pistlar | Skrá ummæli

Elín Hansdóttir

This slideshow requires JavaScript.

“Innsetningar Elínar Hansdóttur, sem byggðar eru fyrir tiltekin rými, taka á sig margvíslegar myndir. Hljóð- og/eða sjónrænar blekkingar, göng í ætt við völundarhús og byggingarfræðilega þætti sem myndast fyrir tilstilli hreyfingar. Með því að gjörbylta venjulegu rými í eitthvað sem tekur öllum væntingum fram og virðist einungis eiga sér stað á tilteknu augnabliki í tíma, skapar hún heildstæða heima sem virðast lúta sínum eigin lögmálum. Innsetningar sínar hefur hún m.a. skapað fyrir nokkur aþjóðleg sýningarrými, svo sem Frieze Projects í London, ZKM í Karlsruhe, Þýskalandi, Den Frie Udstillingsbygning í Kaupmannahöfn, Wood Street Galleries í Pittsburgh, Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur. ”
Posted in Pistlar | Skrá ummæli

Birgir Snæbjörn Birgirson

This slideshow requires JavaScript.

Birgir Snæbjörn Birgisson fæddist árið 1966. Hann nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og École des Arts Décoratifs í Strassborg í Frakklandi.

Hann var einnig búsettur um tíma í London þar sem hann starfaði að myndlist en býr og starfar nú í Reykjavík. Birgir hefur sýnt víða bæði hér heima og erlendis. Framundan er vinnustofudvöl í París í Frakklandi og þátttaka í sýningu í Stokkhólmi í Svíþjóð svo eitthvað sé nefnt.

Birgir hefur á undanförnum árum með einum eða öðrum hætti unnið með táknmynd ljóskunnar. Dæmi um verk eftir Birgi eru myndaraðirnar: Ljóshærðir hjúkrunarfræðingar, Ljóshærðar starfsstéttir, Ljóshærð ungfrú heimur 1951-, Auðmýkt, Ljóshærðir listamenn og nú síðast Ljóshærðir tónlistarmenn. Skemmst er líka að minnast myndaraðarinnar Fallegu Parísarkonurnar sem var til sýnis í Listasafni Íslands á síðastliðnu ári og Hvíta hús verkefnisins, sem var nýlega sýnt í Kling og Bang Gallerí. Verk Birgis eru með samfélagslega og pólitíska skírskotun.

Málverk sem breyta myndum og táknum sem við köllum fögur og göngum að sem gefnum í ótrúlega krefjandi fyrirbæri sem fær okkur til að hugsa okkur tvisvar um og heimta síðan eina umferð enn.

 Þær sýna okkur muninn á athöfn sem reynir aðeins að skapa fyrirfram tilbúna niðurstöðu og athöfn sem leikur sér með væntingar okkar og fordóma til að gera hið hversdagslega meira spennandi og já, fá fram niðurstöðu sem ekki er hægt að endurtaka.

 Þetta eru málverk sem fá okkur til að skoða grundvallaratriðin. Þau fara með okkur að kjarna þess hver við erum, hvernig við erum, með hverjum við erum og hvernig við komum fram við okkur sjálf og fólkið sem við erum með.

 

Mika Hannula

Að gera fiðrildi að möðkum

-málverk Birgis Snæbjörns Birgissonar

Ljóshærð ungfrú heimur 1951-

Listasafn Reykjavíkur, 2007

 

Posted in Pistlar | Skrá ummæli

guðrún Hrönn Ragnarsdóttir

This slideshow requires JavaScript.

Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir býr og starfar í Finnlandi.  Hún útskrifaðist úr Nýlistadeild Myndlista og handíðaskóla Íslands og í framhaldinu nam hún í Hollandi við Jan van Eyck Akademie í Maastricht.  Veturinn 2006 til 2007 stundaði hún kennsluréttindanám við Listaháskóla Íslands.  Frá því að hún lauk formlegu myndlistarnámi hefur hún sýnt reglulega víðs vegar og eru verk hennar í eigu opinberra listasafna og einkasafna hér heima og erlendis.

Undanfarið hefur Guðrún Hrönn hefur unnið með innsetningar sem samanstanda af ljósmyndum af hlutum úr okkar nánasta umhverfi.  Á ferðalögum notar hún myndavélina til að skrásetja hversdagslega hluti sem af einhverjum ástæðum vekja athygli hennar.  Það getur verið vegna nostalgíu, litar, forms eða vegna þess að þeir virka skrítnir, annarlegir og jafnvel kómískir.  Þótt hlutirnir sem skrásettir eru séu þekkjanlegir úr okkar eigin umhverfi eru þeir settir fram á annan hátt en vanalega og gefa því ástæðu til vangaveltna og nánari skoðunar.  Verkin endurspegla nánd stundarinnar og staðarins um leið og þau skírskota á sinn hátt til annars tíma og rýmis.

Posted in Pistlar | Skrá ummæli